Arnar Birkir er íþróttakarl HK

Arnar Birkir Björnsson, íþróttakarl HK 2025

HK veitti í dag verðlaun fyrir árangur á árinu 2025 og var Arnar Birkir Björnsson kjörinn íþróttakarl HK.

Blakdeild HK tilnefndi Arnar Birki Björnsson blakmann ársins og Savannah Dean Marshall var blakkona ársins hjá félaginu. Þau eru bæði frelsingjar HK liðanna og þóttu skara fram úr á liðnu ári. Arnar Birkir var jafnframt valinn íþróttakarl HK. Arnar lék með karlalandsliði Íslands á Smáþjóðaleikum og í European Silver League á liðnu ári en auk þess er hann fyrirliði HK liðsins.

Blakið fékk fleiri viðurkenningar á íþróttahátíð HK en U20 kvenna í blaki var lið ársins hjá HK. Þær urðu Íslandsmeistarar í sínum flokki auk þess að ná í silfurverðlaun í bikarkeppni BLÍ.

U20 lið kvenna var lið ársins hjá HK en hér eru fulltrúar liðsins ásamt Arnari Birki og Bryan Silva, þjálfara.