Ólafur Jóhann dæmir á Evrópumóti U16 ára kvenna í Albaníu

Ólafur Jóhann Júlíusson einn af þremur alþjóðlegu dómurum Íslands kemur til með að dæma á Evrópumóti U16 ára kvenna sem fer fram í Albaníu og Kosovo dagana 2.-13. júlí næstkomandi.

Ólafur Jóhann sem bættist í hóp íslenskra alþjóðlegra dómarar síðasta sumar verður fyrsti íslenski dómarinn til að dæma á lokamóti Evrópumóts hjá CEV en hann dæmir í Riðli 1 sem fer fram í Albaníu.

Leikjaplan mótsins má sjá hér.