Öruggur sigur HK í Digranesi

Sannkallaður nágrannaslagur fór fram í Digranesi í kvöld þegar HK Ýmir og HK mættust í Unbroken deild kvenna.

Þetta tímabilið teflir HK fram tveimur liðum í Unbroken deild kvenna. Félagið kynnti nýtt lið til leiks fyrir tímabilsins en HK Ýmir er skipað ungum leikmönnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Búist var við erfiðum leik hjá þeim þar sem Íslandsmeistarar HK mættu til leiks.

HK fór vel af stað í fyrstu tveimur hrinum leiksins og vann sannfærandi sigra í báðum hrinum. HK Ýmir átti góðar skorpur en átti erfitt uppdráttar gegn sterku liði HK. HK Ýmir byrjaði hins vegar frábærlega í þriðju hrinu og náði 5-1 forystu. HK var hins vegar ekki lengi að vinna það upp og tryggði öruggan 0-3 sigur í leiknum.

HK Ýmir 0-3 HK (8-25, 10-25, 13-25)

HK er á toppi Unbroken deildar kvenna með fullt hús stiga en þær hafa unnið alla fimm leiki sína til þessa. KA er rétt á eftir en þær eru einnig með fullt hús eftir fjóra leiki. Næsti leikur í Unbroken deild kvenna fer fram á laugardag en þar mætast Þróttur Fjarðabyggð og Völsungur í Neskaupstað. Leikið verður þétt í byrjun nóvember en þar mætast meðal annars topplið KA og HK. Sá leikur fer fram á Akureyri 7. nóvember.