Þrír leikir fóru fram í Unbroken-deild kvenna í dag.
Þróttur Fjarðabyggð vann nauman útisigur á Þrótti Reykjavík/Blakfélagi Hafnarfjarðar í Laugardalshöll. Leikurinn fór í oddahrinu þar sem gestirnir tryggðu sér sigurinn, 3–2 (22-25, 25-21, 25-22, 12-25, 16-14)
KA tók á móti HK-Ými í KA-heimilinu og vann þar öruggan sigur 3–0 (25-11, 25-10, 25-21).
HK vann einnig nokkuð öruggan sigur þegar Völsungur kom í heimsókn í Digranes, 3-0 (25-10, 25-20, 25-8)
Öll þessi lið mætast aftur á morgun en úrslit og leiki má sjá hér.