Þeir Sævar Már Guðmundsson og Jón Ólafur Valdimarsson verða með flautuna á lofti í Silver League núna í Mai/Júní.
Jón Ólafur dæmir í Silver League kvenna en hann dæmir viðureignir Austurríkis og Georgíu sem aðaldómari og leik Íslands og Austurríkis sem aðstoðardómari.

Sævar Már dæmir svo í Silver League karla en hann dæmir viðureignir Svíþjóðar og Færeyja sem aðaldómari og leik Íslands og Svíþjóðar sem aðstoðardómari.