Ólafur Jóhann Júlíusson dæmir úrslitaleik á Evrópumóti U16 kvenna

Ólafur Jóhann Júlíusson alþjóðlegur dómari, dæmir á morgun úrslitaleik á Evrópumóti U16 kvenna.

Ólafur sem hefur verið að dæma á Evrópumóti U16 kvenna í Albaníu undanfarna daga, kemur til með að dæma úrslitleikinn sem fer fram á morgun, en þar verður Ólafur aðaldómari.

Vel hefur gengið hjá Ólafi á mótinu og fær hann það stóra hlutverk að dæma úrslitaleikinn sjálfan en þar mætast Pólland og Tyrkland.

Leikinn verður hægt að sjá hér.