Ísland og Írland mættust í úrslitaleik SCA U20 en mótið er í Skotlandi.
Ísland hafði unnið alla sína leiki á mótinu og mættu því til leiks fullir sjálfstrausts.
Íslenska liðið fór vel af stað í leiknum og náðu strax góðum tökum á leiknum, sterkar uppgjafir frá Grím Kristinssyni öllu írum miklum vandræðum. Ísland hafði betur 25-18 í fyrstu hrinu.
Strákarnir fóru brösulega af stað í annarri hrinu og gekk sóknarleikur liðsins illa upp, staðan var 2-6 þegar Egill Þorri Arnarsson þjálfari liðsins tók sitt fyrsta leikhlé. Hægt og rólega unnu þeir sig aftur inní leikinn og ná að jafna 12-12, aftur er það Grímur sem er í uppgjöf. Áfram heldu strákarnir að þjarma að þeim írsku og þrátt fyrir smá hik undir lokinn þá hafði Ísland betur 25-19.
Aftur fór Ísland hægt af stað í þriðju hrinu en voru þó aldrei langt á eftir. Undir miðja hrinu fór þó að halla undan fæti og vantaði svolítið uppá varnarleik íslands. Klaufalegur kafli hjá strákunum varð til þess að þeir töpuðu þriðju hrinu 16-25.
Fjórða hrina var jöfn og spennandi en íslensku strákarnir voru óheppnir með nokkra vafa bolta og létu dómgæsluna aðeins fara í taugarnar á sér. Strákarnir brugðust hinsvegar rétt við og settu í sjötta gír og keyrðu yfir írska liðið, fjórðu hrinu lauk með sigri Íslands 25-17.
Íslenska liðið tryggði sér með sigrinum sæti á Evrópumóti U20 ára sem fer fram sumarið 2027 í Króatíu og Svartfjallalandi.