Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild kvenna í dag en í báðum tilvikum mættust lið sem höfðu einnig leikið í gær. Afturelding sótti Þrótt Fjarðabyggð heim og HK Ýmir tók á móti Völsungi í Digranesi.
Völsungur náði í sinn fyrsta sigur þetta tímabilið þegar liðið vann HK Ými í gær en liðin eru bæði í neðri hluta deildarinnar. Bæði lið eru skipuð ungum leikmönnum og því sérstaklega gaman að fylgjast með þeim spreyta sig í úrvalsdeildinni. Leikur dagsins var afar sveiflukenndur en liðin skiptust á að vinna hrinur þangað til úrslitin réðust í oddahrinu. Þar hafði Völsungur betur í maraþonhrinu sem lauk 19-21. Völsungur náði þar með í annan sigur sinn um helgina en HK Ýmir náði jafnframt í sitt fyrsta stig í deildarkeppninni.
Þróttur Fjarðabyggð og Afturelding mættust í maraþonleik í gær sem Afturelding vann 2-3. Miklar sveiflur voru í þeim leik en í dag var jafnt á öllum tölum í fyrstu hrinunum. Liðin skiptu með sér fyrstu tveimur hrinunum sem báðar unnust með minnsta mun. Áfram hélt spennan í þriðju hrinu en Afturelding vann hana naumlega og fylgdi því eftir með sannfærandi sigri í fjórðu hrinu. Afturelding vann því 1-3 og náði í öll þrjú stigin.
Afturelding er í 3. sæti deildarinnar eftir sigra helgarinnar og er nú með 11 stig. Þróttur F er í 5. sæti með 6 stig. Völsungur og HK Ýmir eru enn í neðstu tveimur sætunum en með sigrunum tveimur um helgina er Völsungur rétt á eftir Þrótti F og Þrótti R/BFH. Langt er í næsta leik í Unbroken deild kvenna en Þróttur R/BFH og HK mætast í Laugardalshöll miðvikudaginn 18. nóvember. Í kjölfarið fara þrír leikir fram laugardaginn 21. nóvember.
Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna
HK Ýmir 2-3 Völsungur (20-25, 25-21, 11-25, 25-18, 19-21)
Þróttur Fjarðabyggð 1-3 Afturelding (25-23, 23-25, 22-25, 19-25)