Hamar náði toppsætinu af Vestra

Mynd: Sigrún Kristjánsdóttir

Unbroken deild karla hélt áfram í dag með þremur leikjum en leikið var um allt land. Hamar og Vestri mættust í toppslag í Hveragerði.

Fyrsti leikur dagsins fór fram á Akureyri þar sem að KA tók á móti HK. Bæði lið hafa farið brösuglega af stað á tímabilinu og jafnræði var með liðunum í fyrstu hrinu. KA hafði nauma forystu stærstan hluta hrinunnar og vann hana. HK byrjaði vel í annarri hrinu en KA komst á gott skrið um miðja hrinu og sneri henni sér í vil. KA náði 2-0 forystu og hafði sannfærandi sigur í þriðju hrinunni til að tryggja 3-0 sigur í leiknum. KA náði þar með í annan sigur sinn á tímabilinu og er nú í 5. sæti með 8 stig. HK er enn án stiga.

Hamar og Vestri mættust í Hveragerði en Vestri var eina taplausa lið deildarinnar. Hvergerðingar voru þó skammt á eftir þeim í stöðutöflunni og gátu með sigri jafnað Ísfirðinga að stigum. Hamar byrjaði mun betur og vann afar auðveldan sigur í fyrstu hrinu leiksins. Önnur hrina var mun jafnari en eftir sterkan lokakafla vann Hamar og tók 2-0 forystu. Vestri náði betri takti í þriðju hrinu en líkt og áður reyndist lið Hamars sterkara undir lokin og vann naumlega. Hamar vann því 3-0 sigur og fer í toppsætið. Bæði lið eru með 12 stig en liðin mætast aftur á morgun.

Lokaleikur dagsins var viðureign Þróttar Fjarðabyggðar og Aftureldingar sem fór fram í Neskaupstað. Fyrsta hrinan var nokkuð sveiflukennd en heimamenn í Þrótti skoruðu fjögur síðustu stigin og unnu hrinuna með minnsta mun. Þróttarar voru miklu betri í annarri hrinu og náðu mest 9 stiga forystu. Mosfellingar náðu að minnka muninn en þrátt fyrir það unnu heimamenn öruggan sigur og náðu 2-0 forystu. Þeir kláruðu svo leikinn með sannfærandi sigri í þriðju hrinu og unnu glæsilegan 3-0 sigur. Þróttur F er nú með 11 stig í 3. sæti deildarinnar en Afturelding í 6. sæti með þrjú stig. Liðin mætast öðru sinni á morgun.

Stöðutöflu, leikjaplan og fleiri upplýsingar um Unbroken deild karla má sjá með því að smella hér.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla

KA 3-0 HK (25-22, 25-16, 25-20). Jakub Pośpiech skoraði 19 stig fyrir KA en Símon Þór Gregorsson skoraði 9 stig fyrir HK.

Hamar 3-0 Vestri (25-14, 25-20, 25-22).

Þróttur Fjarðabyggð 3-0 Afturelding (25-23, 25-18, 25-19).