U18 ára lið stúlkna komið í úrslit á Evrópumóti Smáþjóða

Mynd: Volleyball Ireland

U18 ára landslið stúlkna komst í dag í úrslit á Evrópumóti Smáþjóða eftir öruggan 3-0 sigur á Norður Írlandi.

Ísland mætti Norður Írlandi í undanúrslitum og varð sá leikur bara formsatriði, Ísland vann mjög öruggan sigur 3-0 (25-5, 25-9,25-10). Ísland mætir því annað hvort Skotlandi eða Færeyjum í úrslitaleik á morgun en sigurvegari í úrslitum fer áfram í lokakeppni Evrópumóts U18 ára liða, liðið sem endar í 2. sæti fer í 2.umferð undankeppni EM.

Evrópumót U18 ára liða stúlkna fer fram í Litháen og Lettlandi dagana 01.-12. Júlí og er ljóst að komist Ísland áfram þá er það í fyrsta skipti sem íslenskt lið fer áfram á lokamót.

Úrslitaleikur SCA fer fram á morgun, miðvikudag og hefst hann kl 17:00