Íslensku strákarnir unnu öruggan sigur á Norður Írlandi á Evrópumóti Smáþjóða U18 sem haldið er í Dublin, Írlandi.
Ísland vann leikinn 3-0 (25-10, 25-11, 25-12) og eru því komnir í góða stöðu um efsta sæti á mótinu en liðið sem endar í efsta sæti fer beint í lokakeppni Evrópumótsins.
Ísland á tvo leiki á morgun en kl 11 mæta þeir Færeyjum og svo mæta þeir Írlandi kl 17, en Írland hafði betur gegn Færeyjum fyrr í dag, 3-2.