Sitjandi blakmót í desember

Nýlega sóttu tveir þjálfarar námskeið í sitjandi blaki með það að markmiði að auka sýnileika íþróttarinnar á Íslandi. Nú er komið að fyrsta mótinu í þessu verkefni.

Þegar jól og áramót nálgast bjóða fjölmörg félög upp á skemmtimót í blaki. Thelma Dögg Grétarsdóttir og Borja Gonzalez standa fyrir nýjung og bjóða á sitjandi blakmót sem haldið verður í Fagralundi sunnudaginn 21. desember. Boðið er upp á skráningu í 6 manna liðum og er frítt fyrir þá sem skrá sig. Um að gera að skella sér á skemmtimót af nýrri gerð. Skráningu lýkur mánudaginn 15. desember.

18 ára og yngri 9:00-10:30

19 ára og eldri 10:30-12:00

Með því að smella hér má nálgast skráningarform á mótið.