Sannfærandi sigur stelpnanna sem tryggðu gullið

Stelpurnar í íslenska U18 landsliðinu mættu Færeyjum í úrslitaleik á Evrópumóti smáþjóða. Ísland hafði unnið Færeyjar fyrr í mótinu og var liðið til alls líklegt í dag.

Ísland byrjaði ekki vel í dag en færeysku stelpurnar náðu strax þægilegu forskoti í fyrstu hrinu. Ísland náði aðeins að klóra í bakkann um miðja hrinu en Færeyjar unnu þó 17-25. Allt annað var að sjá til íslenska liðsins í annarri hrinunni og var aldrei vafi á því hvort liðið færi með sigur í henni. Ísland vann þar 25-12 og allt orðið jafnt 1-1. Aftur jafnaðist leikurinn út í þriðju hrinunni og var jafnt á öllum tölum fram undir miðja hrinu. Þar tóku íslensku stelpurnar frumkvæðið og unnu 25-21 eftir jafnan lokakafla.

Ísland virtist hafa fengið góðan skammt af sjálfstrausti eftir sigur í þriðju hrinunni og náði 7-0 forystu í upphafi fjórðu hrinu. Ísland átti ekki í vandræðum með að klára hrinuna og vann 25-17 sigur. Gullið var þar með tryggt með 3-1 sigri Íslands. Glæsilegur leikur og íslensku stelpurnar tryggja önnur gullverðlaun Íslands á mótinu.

Íslensku stelpurnar hafa því, líkt og drengirnir, tryggt sér sæti á lokamóti EM í aldursflokki U18.