Þróttur Reykjavík/BFH og Þróttur Fjarðabyggð mættust í dag í Unbroken deild kvenna. Þróttur Fjarðabyggð lék gegn HK í gær en Þróttur R/BFH lék sinn fyrsta leik á nýju ári.
Framan af fyrstu hrinu leiksins var allt hnífjafnt en þegar leið á hrinuna seig heimaliðið fram úr. Mestur varð munurinn 11 stig og Þróttur R/BFH sigldi þægilegum sigri heim. Svipaða sögu var að segja af annarri hrinunni þar sem að eftir jafna byrjun fór Þróttur R/BFH að auka forskotið smám saman. Eftir miðbik hrinunnar var um algjöra einstefnu að ræða og endaði hrinan á 10-2 kafla heimakvenna.
Enn og aftur var nokkuð jafnræði í upphafi þriðju hrinunnar og héldu gestirnir betur í við Reykvíkinga í þetta sinn. Góður lokakafli kláraði hins vegar leikinn fyrir heimakonur en eftir að jafnt var 20-20 reyndust þær mun sterkari á lokasprettinum. Þróttur R/BFH vann því 3-0 sigur og kemur sér þar með í fjórða sæti deildarinnar með 16 stig. Þróttur Fjarðabyggð er sem fyrr á botni deildarinnar með 1 stig. Næstu leikir í Unbroken deild kvenna fara fram miðvikudaginn 21. janúar þegar Afturelding mætir HK og KA mætir Völsungi.
Úrslit dagsins – Unbroken deild kvenna
Þróttur R/BFH 3-0 Þróttur Fjarðabyggð (25-16, 25-14, 25-21)