Öruggur sigur gegn Færeyjum og Ísland með fullt hús stiga

Íslenska piltalandsliðið skipað leikmönnum 18 ára og yngri lék í dag gegn Færeyjum á Evrópumóti Smáþjóða.

Strákarnir byrjuðu leikinn ekki vel og voru strax komnir undir í upphafi leiks. Mikið af uppgjafar mistökum urði til þess að færeyska liðið var fljótlega komið með góð tök á leiknum. Strákarnir gáfust hinsvegar ekki upp og náðu að lokum að jafna 23-23. Ísland tók svo seinustu tvö stig hrinunnar og unnu að lokum 25-23.

Ísland byrjaði svo af miklum krafti í annarri hrinu og gáfu fá færi á sér. Ísland sigraði hrinuna örugglega 25-11. Sama var uppá teningnum í þriðju hrinu en henni lauk einnig með öruggum sigri 25-9.

Ísland er því enn með fullt hús stiga og nægir þeim 1 stig þegar þeir mæta Írlandi seinna í dag.