Íslensku strákarnir byrja Evrópumót Smáþjóða af krafti

Mynd: Volleyball Ireland

Ísland og Skotland mættust á Evrópumóti Smáþjóða U18 í dag en leikið er í Dublin, Írlandi.

Íslensku strákarnir byrjuðu leikinn vel og voru fljótt komnir með gott forskot. Góðar uppgjafir komu skotunum í vandræði og þá var sóknarleikur liðsins góður. Ísland vann fyrstu hrinuna 25-18. Önnur hrina var mun jafnari en liðin skiptust á stigum framan af. Íslenska liðið setti svo í næsta gír ýttu skotunum frá sér. Gott samspil Markúsar og Ágústs Leó kom skotunum í vandræði og virtist Ísland ætla að vinna aðra hrinu sannfærandi, skotarnir voru hinsvegar ekki búnir að gefast upp og náðu að koma sér aftur inní hrinuna. Enn og aftur var það hinsvegar Ágúst Leó sem kom Íslandi til bjargar og endaði hann hrinuna með góðu sóknarstigi 25-23.

Íslensku strákarnir lentu í smá vandræðum í upphafi þriðju hrinu en voru fljótir að hrista það af sér og ná aftur tökum á leiknum. Eftir það var hrinan aldrei í hættu og endaði hún með öruggum sigri Íslands 25-17 og Ísland vinnur því fyrsta leik sinn á mótinu 3-0.

Strákarnir mæta á morgun Norður Írlandi kl 11:00 en Norður Írland tapaði í dag gegn Írlandi.