Holte áfram í Evrópubikarnum eftir sigur á UVC Holding

Í 32. liða úrslitum í Evrópubikarnum mætti Holte Austurríska liðinu UVC Holding.

Liðin mættust í fyrri leiknum 25. nóvember í Danmörku. Þar sýndi Holte strax að leikurinn færi fram á þeirra heimavelli og unnu þær fyrstu tvær hrinurnar örugglega, 25–17 og 25–15. Þriðja hrinan var jafnari, en heimakonur höfðu þó betur 27–25. Þessi sigur tryggði þeim ekki neitt en setti Holte í mjög góða stöðu fyrir seinni leikinn þar sem þær myndu aðeins að vinna tvær hrinur til að komast áfram.

Seinni leikurinn fór fram í gær í Austurríki. Holte byrjuðu mjög sterkt og unnu fyrstu hrinuna 25–18. Holding steig upp í annarri hrinu og eftir mikla baráttu vann Holding hana 26–24. Þetta setti Holte aðeins úr jafnvægi og Holding tryggði sér einnig þriðju hrinuna 25–19. Þá komu Holte sterkar til baka, unnu fjórðu hrinuna örugglega 25–15 og tryggðu sér þar með sæti í næstu umferð. Til að taka allan vafa af unnu þær svo fimmtu hrinuna 15–12 og þar með leikinn 3–2.

Sara og liðsfélagar hennar eru því komnar áfram í 16 liða úrslit Evrópubikarsins, þar sem þær mæta annaðhvort liði frá Serbíu eða Belgíu. Við óskum þeim innilega til hamingju og góðs gengis