HK vann jafnan leik í Digranesi

Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í kvöld þar sem að HK tók á móti Þrótti Reykjavík / BFH í Digranesi.

Fyrir leik kvöldsins var HK annað af tveimur ósigruðum liðum deildarinnar ásamt KA en Þróttur R/BFH var í þriðja sæti á eftir HK og KA. Það var hins vegar lið Þróttar sem byrjaði mun betur og leiddi alla fyrstu hrinuna. HK náði að minnka muninn í eitt stig undir lokin en gestirnir unnu naumlega og tóku 0-1 forystu. HK byrjaði mun betur í annarri hrinu en náði ekki að slíta sig almennilega frá gestunum. Þróttarar áttu möguleika á að stela hrinunni undir lokin en HK vann eftir upphækkun og jafnaði leikinn.

Þriðja hrina var fyrsta hrina leiksins sem var ekki í járnum en HK náði fljótlega þægilegu forskoti. HK vann hrinuna ansi þægilega og leiddi þá 2-1. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fjórðu hrinu en HK-ingar byggðu smám saman upp forskot fyrir lokakaflann. HK vann því 3-1 sigur og tryggði sér öll þrjú stigin. HK er því enn með fullt hús stiga eftir sex leiki en Þróttur R/BFH er í þriðja sætinu með sjö stig eftir sex leiki.

HK 3-1 Þróttur R/BFH (22-25, 29-27, 25-17, 25-20). Elísabet Einarsdóttir skoraði 14 stig fyrir HK en Michelle Traini skoraði 17 stig fyrir Þrótt R/BFH.

Það verður nóg um að vera í Unbroken deildum karla og kvenna um helgina en alls fara fram tíu leikir á laugardag og sunnudag, fimm karlamegin og fimm kvennamegin. Þar á meðal er toppslagur KA og HK í kvennadeildinni en liðin mætast fyrir norðan á laugardag. Karlamegin mætast Hamar og Vestri tvívegis en Vestri er eina taplausa lið Unbroken deildar karla.