Vestri og Þróttur með sigra

Mynd: Blakdeild Þróttar

Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild karla í dag leikið var á Ísafirði og í Kópavogi.

Vestri og KA mættust á Ísafirði en liðin mættust einnig í gær. Þar fór Vestri með 3-2 sigur eftir hörkuleik. Íslandsmeistarar KA hafa farið hægt af stað í upphafi tímabils en Vestri hefur byrjað afar vel og var eina taplausa lið deildarinnar fyrir leik dagsins. Það var einnig jafnt með liðunum í dag en eftir afar jafna fyrstu hrinu vann KA með minnsta mun. Það sama var uppi á teningnum í annarri hrinu en þá vann KA eftir upphækkun og náði 0-2 forystu.

Vestri náði betri takti í þriðju hrinu og vann hana sannfærandi en KA leiddi 16-21 fyrir lokakafla fjórðu hrinu. Þá tóku heimamenn völdin og unnu 25-22 eftir frábæran lokasprett. Aftur réðust úrslitin því í oddahrinu en hana unnu Vestramenn auðveldlega. Vestri hefur því unnið alla fimm leiki sína og heldur toppsæti deildarinnar. KA hefur aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum og er í 5. sæti deildarinnar.

Seinni leikur dagsins fór fram í Digranesi þar sem að Þróttur Reykjavík sótti HK heim. Gestirnir byrjuðu vel og höfðu naumt forskot út hrinuna. Hana unnu þeir þó naumlega og meira jafnræði var með liðunum framan af annarri hrinu. Eftir miðbik hrinu tóku Þróttarar hins vegar yfir og unnu öruggan sigur. Áfram var nokkuð um sveiflur í þriðju hrinu en eftir spennandi hrinu var það Þróttur Reykjavík sem vann hrinuna og leikinn þar með 0-3. Þróttarar eru enn í 4. sæti deildarinnar eftir leikinn en HK er án sigurs í botnsæti deildarinnar.

Næsti leikur í Unbroken deild karla fer fram á miðvikudag en þá mætast Afturelding og Þróttur Reykjavík að Varmá. Beint í kjölfar þess leiks mætast kvennalið félaganna og því um tvíhöfða að ræða á miðvikudagskvöldið.

Úrslit dagsins

Vestri 3-2 KA (23-25, 25-27, 25-18, 25-22, 15-8)

HK 0-3 Þróttur Reykjavík (23-25, 17-25, 22-25)