HK og KA unnu sannfærandi sigra

Mynd: Sigga Þrúða

Tveir leikir voru á dagskrá í Unbroken deild kvenna í kvöld. Afturelding tók á móti HK í Mosfellsbæ en fyrir norðan mættust nágrannaliðin Völsungur og KA á Akureyri.

HK er komið í góða stöðu á toppi deildarinnar og gat aukið forskot sitt í kvöld þegar liðið mætti í Mosfellsbæinn. HK byrjaði leikinn aldeilis vel og leiddi strax 1-6 í upphafi fyrstu hrinu. Afturelding átti nokkur góð áhlaup í hrinunni en allt kom fyrir ekki, HK hélt út og vann nokkuð öruggan sigur. Dæmið snerist við í annarri hrinu þar sem að Afturelding byrjaði mjög vel og leiddi 10-3. HK gafst þó ekki upp og náði í sigur með 1-6 kafla undir lokin og náði 0-2 forystu.

Í þriðju hrinu var allur vindur úr heimakonum og HK gekk á lagið. HK vann auðveldan 11-25 sigur og tryggði þar með 0-3 sigur og þrjú stig. Þar með eru HK stúlkur með 40 stig eftir 14 leiki og halda KA í þægilegri fjarlægð í 2. sæti deildarinnar.

KA mætti einmitt Völsungi í síðari leik kvöldsins og hóf leikinn af krafti. KA hafði afar þægilegt forskot nánast alla hrinuna og vann hana án nokkurra vandræða. Svipaða sögu var að segja af annarri hrinu þar sem KA jók forystuna hægt og bítandi. KA vann aftur þægilegan sigur og leiddi því 2-0.

Meira jafnræði var með liðunum í þriðju hrinu leiksins en að lokum reyndust KA sterkari og tryggðu sér sannfærandi 3-0 sigur. KA fylgir HK því eftir við topp deildarinnar, KA er 9 stigum á eftir HK en á leik til góða.

Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna – Miðvikudagur 21. janúar

Afturelding 0-3 HK (17-25, 22-25, 11-25)

KA 3-0 Völsungur (25-16, 25-18, 25-20)