Líða fer að lokum blakársins 2025 en Unbroken deild kvenna var á sínum stað í dag. Tveir leikir fóru fram fyrir norðan og þar á meðal toppslagur KA og HK.
Fyrri leikur dagsins var viðureign Völsungs og Aftureldingar en leikið var á Laugum í þetta skiptið. Í síðasta leik liðanna hafði Völsungur betur, 3-0, en Húsvíkingar voru einnig skrefi á undan í stigatöflunni fyrir leik dagsins. Völsungur sýndi strax í fyrstu hrinu að þær ætluðu að halda sigurhefðinni gegn Mosfellingum en lið Völsungs leiddi með 8 stiga mun um miðja hrinu. Þær unnu hrinuna auðveldlega og náðu 1-0 forystu án mikilla vandræða.
Völsungur bætti enn frekar í og náði 5-0 forystu í annarri hrinu. Leikurinn jafnaðist þó út eftir það og skyndilega náðu gestirnir 5 stiga forystu. Eftir æsilegan lokakafla náði Völsungur aftur yfirhöndinni og leiddi leikinn þá 2-0. Afturelding hélt áfram að setja pressu á heimakonur og höfðu forystuna framan af þriðju hrinunni. Eftir miðbik hennar snerist dæmið þó við og Völsungur sigldi sannfærandi 3-0 sigri heim. Völsungur heldur því 3. sæti deildarinnar og hefur nú 7 stiga forskot á Aftureldingu.
Þá var komið að toppslag deildarinnar en KA og HK mættust í KA-heimilinu. Fyrir leik hafði KA þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar en hafði leikið 10 leiki gegn 9 leikjum HK. Það var því ljóst að úrslit helgarinnar gætu ráðið ansi miklu í deildarkeppninni þetta tímabilið.
Gestirnir frá Kópavogi byrjuðu leikinn mun betur og byggðu jafnt og þétt upp öruggt forskot í fyrstu hrinunni. Þær unnu hrinuna að lokum ansi auðveldlega en mun jafnara var í annarri hrinunni. Góður kafli HK um miðja hrinu kom þeim 4 stigum yfir og hélst 2-4 stiga munur að mestu út hrinuna sem HK vann einnig.
HK virtist ætla að fara létt með þriðju hrinuna en eftir að staðan var orðin 5-12 vöknuðu heimakonur til lífsins. Þær minnkuðu muninn hægt og bítandi og komust 21-20 yfir. HK reyndust hins vegar sterkari á lokasprettinum og tryggðu sér 0-3 sigur. Sá mun eflaust reynast mikilvægur þegar uppi er staðið en KA fær þarf ekki að bíða lengi eftir tækifæri til að hefna fyrir tapið. Liðin mætast öðru sinni á morgun en sá leikur hefst klukkan 14:00 og verður í beinni útsendingu á Livey.
Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna – Laugardagur 13. desember
Völsungur 3-0 Afturelding (25-17, 25-23, 25-20)
KA 0-3 HK (16-25, 21-25, 23-25). Julia Bonet Carreras skoraði 24 stig fyrir KA en Helena Einarsdóttir skoraði 19 stig fyrir HK.