Hamar með auðveldan sigur á heimavelli

Einn leikur fór fram í Unbroken deild karla í kvöld en Hamar og HK mættust í Hveragerði.

Gengi liðanna þetta tímabilið hefur verið afar ólíkt. Hamarsmenn hafa verið á góðu skriði og eru í harðri baráttu um efsta sæti deildarinnar. HK-ingar hafa hins vegar átt erfitt uppdráttar og eru í botnsæti Unbroken deildarinnar með 3 stig. Heimamenn byrjuðu leikinn afar vel og voru mun sterkari í fyrstu hrinu. HK minnkaði muninn um miðja hrinu en ógnaði sigri Hamars aldrei að ráði.

Nokkuð jafnara var með liðunum í annarri hrinu en um miðbik hennar hrukku Hvergerðingar aftur í gang. Þeir unnu sannfærandi sigur og fylgdu því svo eftir með öruggum sigri í þriðju hrinunni. Hamar vann leikinn því 3-0 og endurheimtir toppsæti deildarinnar. Hamar er með 29 stig eftir 12 leiki en Afturelding getur jafnað þá á toppnum þar sem þeir hafa aðeins spilað 11 leiki.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Miðvikudagur 10. desember

Hamar 3-0 HK (25-19, 25-16, 25-15). Hafsteinn Valdimarsson var stigahæstur í liði Hamars með 10 stig en Denis Pavlovs, Borislav Nikolov og Valgeir Valgeirsson skoruðu 9 stig hver. Hjá HK var Tómas Davidsson stigahæstur með 7 stig en Óskar Benedikt Gunnþórsson, Michal Jan Potempa og Riccardo Meucci skoruðu 6 stig hver.

Þremur deildarleikjum er ólokið þetta árið en næst á dagskrá er viðureign Völsungs og Aftureldingar sem fer fram laugardaginn 13. desember. Þann 17. desember lýkur svo deildarkeppni þetta almanaksárið með tveimur leikjum. Keppni hefst að nýju þann 4. janúar.