Blakdeildin áberandi á uppskeruhátíð KA

Kvennalið KA fagnar Íslandsmeistaratitlinum árið 2025

Síðustu daga hafa blakarar verið áberandi á uppskeruhátíðum sinna félagsliða og það átti heldur betur við í dag þegar KA heiðraði sitt íþróttafólk. Mætti segja að árið 2025 hafi verið ár blakarans og á það sérstaklega vel við fyrir norðan.

Zdravko Kamenov og Julia Bonet Carreras voru tilnefnd til íþróttakarls og -konu KA en Julia vann titilinn í fyrra. Hún gerði sér lítið fyrir og endurtók leikinn en hún er því íþróttakona KA fyrir árin 2024 og 2025. Kvennalið KA átti frábært tímabil og vann alla þrjá titlana tímabilið 2024/25. Liðið sjálft var sömuleiðis verðlaunað í dag en meistaraflokkur kvenna í blaki er lið ársins hjá KA fyrir árið 2025. Þá var Miguel Mateo Castrillo valinn þjálfari ársins í þriðja sinn en hann stýrir báðum meistaraflokksliðum KA.

Julia Bonet Carreras er íþróttakona KA annað árið í röð (Mynd: KA)

Síðast en ekki síst fékk Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir hinn svokallaða Böggubikar. Hann er veittur einstaklingum á aldrinum 16-19 ára sem þykja efnileg í sinni grein en eru ekki síður sterk félagslega. Þessir einstaklingar eru til fyrirmyndar á æfingum og í keppni og eru bæði jákvæð og hvetjandi.

Sóldís Júlía með Böggubikarinn (Mynd: KA)

Lesa má nánar um verðlaunin og vinningshafana á heimasíðu KA.