Leikið var í bæði Unbroken deild karla og Kjörísbikar karla í dag en einn leikur fór fram í hvorri keppni.
Völsungur og Afturelding mættust í Unbroken deild karla en Afturelding hefur verið á miklu skriði undanfarnar vikur. Völsungur hefur aftur á móti verið í vandræðum og ekki unnið leik síðan 21. september. Leikurinn byrjaði eins og stöðutafla deildarinnar benti til þar sem að Afturelding fór létt með heimamenn. Önnur hrina var hins vegar hnífjöfn allt fram undir miðja hrinu þegar staðan var 15-15. Þá setti Afturelding í næsta gír og lauk hrinunni með 10-1 kafla.
Staðan var því orðin erfið fyrir Völsung, 0-2 undir og virtust ekki líklegir til afreka. Heimamenn fóru ágætlega af stað í þriðju hrinunni en Afturelding tók völdin þegar leið á hrinuna. Þriðju hrinu lauk einnig með sannfærandi sigri Mosfellinga sem unnu leikinn þar með 0-3. Afturelding er því á toppi deildarinnar ásamt Hamri með 29 stig. Völsungur er með 7 stig í sjöunda og næstneðsta sætinu.
Einnig var leikið í Kjörísbikar karla en KA Splæsir tóku á móti Vestra á Akureyri. KA Splæsir tekur þátt í 3. deild karla en Vestri er um miðja deild í Unbroken deildinni. Vestramenn voru ansi fámennir en ungir leikmenn liðsins fengu að spila allan leikinn. Barist var um sæti í 8-liða úrslitum keppninnar og var leikurinn hnífjafn í upphafi. Jafnt var á flestum tölum í fyrstu hrinunni en undir lokin reyndust Vestramenn sterkari og náðu 0-1 forystu. Svipað var uppi á teningnum í annarri hrinu en nú leiddi KA allan tímann. Þeir héldu út í lokin og jöfnuðu leikinn 1-1.
Enn hélt spennan áfram í þriðju hrinu og var iðulega aðeins eins stigs munur á liðunum til skiptis. Upphækkun þurfti til að fá sigurvegara í hrinunni og náðu heimamenn að knýja fram sigur. Vestri gerði betur í fjórðu hrinu og náði í nokkuð þægilegan sigur. Leikurinn fór því alla leið í oddahrinu þar sem að KA Splæsir gerði sér lítið fyrir og vann hrinuna sannfærandi. KA Splæsir fer því í 8-liða úrslitin og mætir þar Völsungi.
Úrslit dagsins í Unbroken deildinni og Kjörísbikar karla – Laugardagur 13. desember
Unbroken deildin : Völsungur 0-3 Afturelding (14-25, 16-25, 15-25)
Kjörísbikarinn : KA Splæsir 3-2 Vestri (22-25, 25-21, 29-27, 17-25, 15-10). Sölvi Páll Sigurpálsson átti stórleik og skoraði 30 stig fyrir KA Splæsi. Hákon Ari Heimisson skoraði 20 stig fyrir Vestra.