Afturelding í annað sætið eftir sigur á heimavelli

Mynd: Anton Terzi

Einn leikur fór fram í Unbroken deild karla í kvöld en þar mættust Afturelding og HK. Afturelding er í harðri baráttu í efri hluta deildarinnar á meðan að HK er í botnsætinu.

Leikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn sem náðu strax afgerandi forystu. HK lagaði stöðuna lítillega þegar leið á hrinuna en Mosfellingar unnu engu að síður þægilegan sigur, 25-19. Önnur hrinan var alls ekki lík þeirri fyrstu þar sem að HK náði 0-4 forystu. Eftir að hafa leitt 5-12 komst Afturelding loks á skrið og varð seinni hluti hrinunnar afar spennandi. Afturelding reyndist sterkari undir lokin, vann 25-23 og tók 2-0 forystu í leiknum.

Þriðja hrinan var einnig jöfn og spennandi en hvorugt lið náði að slíta sig frá hinu. Forystan sveiflaðist en varð aldrei meiri en 1-2 stig í aðra hvora áttina. HK gerði vel undir lok hrinunnar og hafði yfirhöndina en Afturelding jafnaði 23-23. Heimamenn gerðu svo betur í blálokin og unnu 26-24 sigur. Afturelding vann því 3-0 og situr nú í öðru sæti deildarinnar með 34 stig eftir 15 leiki. Hamar er í efsta sætinu með 35 stig eftir 15 leiki.