Allt hnífjafnt á toppnum eftir tvær oddahrinur

Mynd: Sigga Þrúða

Fjörið hélt áfram í Unbroken deild karla í dag þegar síðustu tveir leikir helgarinnar fóru fram. Hamar tók á móti Vestra öðru sinni þessa helgina og það sama átti við um Þrótt Fjarðabyggð sem mætti Aftureldingu í annað sinn.

Þróttarar gerðu sér lítið fyrir í gær þegar þeir unnu 3-0 sigur gegn Aftureldingu. Leikið var í Neskaupstað og fór seinni leikur liðanna fram í dag. Eftir jafna fyrstu hrinu tóku heimamenn 1-0 forystu en Afturelding svaraði með því að vinna næstu tvær hrinur. Þróttur kom til baka í fjórðu hrinu og fór leikurinn alla leið í oddahrinu. Eftir mikið jafnræði í fyrstu fjórum hrinunum unnu Þróttarar sannfærandi sigur í oddahrinunni og unnu leikinn 3-2. Þróttur F náði því að setjast í toppsætið í örstutta stund eða þar til leikur Hamars og Vestra kláraðist.

Vestri sótti Hamar heim í Hveragerði en Hamar vann leik gærdagsins 3-0 og komst þar með á topp deildarinnar. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leik dagsins og bæði lið gátu sest á toppinn með sigri. Vestri byrjaði leikinn afar vel og vann fyrstu hrinuna og komust svo í vænlega stöðu þegar þeir unnu aðra hrinuna eftir æsilegan lokakafla og upphækkun. Hamar svaraði með sigri í þriðju hrinu sem þeir unnu þó með minnsta mun. Aftur var Hamar sterkari aðilinn í fjórðu hrinunni og það voru Hvergerðingar sem unnu oddahrinuna og tryggðu sér 3-2 sigur og toppsæti Unbroken deildar karla.

Með sigrinum fer Hamar á toppinn þar sem liðið er með 14 stig. Þar á eftir koma Þróttur Fjarðabyggð og Vestri með 13 stig hvort. Þróttur Reykjavík er skammt á eftir með 11 stig og KA er í 5. sæti með 8 stig. Afturelding er í 6. sæti deildarinnar með fjögur stig og HK á botninum án stiga. Aðeins einn leikur fer fram í Unbroken deild karla í næstu viku en Þróttur Reykjavík tekur á móti HK miðvikudaginn 11. nóvember. Allar helstu upplýsingar um Unbroken deild karla má nálgast með því að smella hér.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla

Þróttur Fjarðabyggð 3-2 Afturelding (25-23, 21-25, 22-25, 25-21, 15-8)

Hamar 3-2 Vestri (21-25, 24-26, 25-23, 25-20, 15-12)