HK vann toppslag Unbroken deildar kvenna

Þrír leikir fóru fram í Unbroken deild kvenna í dag en bæði var slegist á toppi og botni deildarinnar.

Dagurinn byrjaði á botnslag HK Ýmis og Völsungs en bæði lið leituðu að sínum fyrstu stigum á tímabilinu. Leikið var í Digranesi en það voru gestirnir sem byrjuðu leikinn betur. Völsungur hafði þægilegt forskot alla hrinuna og tók 0-1 forystu á öruggan hátt. Önnur hrina þróaðist á svipaðan hátt þar sem Völsungur vann aftur sannfærandi sigur. Þriðja hrina leiksins var mun jafnari og tók HK Ýmir forystuna um miðja hrinu. Aldrei munaði miklu á liðunum en HK Ýmir vann hrinuna að lokum og minnkaði muninn í 1-2. Völsungur reyndist mun sterkari aðilinn í fjórðu hrinunni og vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Liðin mætast aftur á morgun.

Næst var komið að toppslag KA og HK sem fram fór á Akureyri. KA hafði ekki enn tapað hrinu í Unbroken deildinni þetta tímabilið en bæði lið voru með fullt hús stiga. Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrstu hrinu en KA hafði betur með sterkum lokakafla. HK svaraði með góðri frammistöðu í annarri hrinu leiksins og vann sannfærandi sigur en þar með tapaði KA sinni fyrstu hrinu eftir að hafa unnið 16 hrinur í röð. KA virtist ætla að svara tapinu af krafti og hafði þægilegt forskot allt þar til um miðja þriðju hrinu. Þá tóku gestirnir yfir og náðu 1-2 forystu í leiknum.

Aftur byrjaði KA vel í fjórðu hrinunni en náði ekki að slíta sig frá gestunum. Hrinan var æsispennandi allt fram á lokakaflann en eftir upphækkun vann KA hálfgerðan endurkomusigur. Það var því viðeigandi að úrslitin í toppslagnum réðust í oddahrinu þar sem KA byrjaði frábærlega. HK sneri dæminu hins vegar við þegar leið á hrinuna og vann hana með minnsta mun. HK vann leikinn því 2-3 og tryggir sér toppsæti deildarinnar í bili. HK er nú með 20 stig eftir sjö leiki en KA er með 13 stig eftir fimm leiki.

Þróttur Fjarðabyggð tók á móti Aftureldingu í Neskaupstað í síðasta leik dagsins en aðeins munaði einu stigi á liðunum fyrir leik dagsins. Þróttarar byrjuðu betur í dag og jókst forysta þeirra eftir því sem leið á fyrstu hrinu. Þróttur vann auðveldan sigur en jafnræði var með liðunum í annarri hrinu. Afturelding var skrefinu á undan og vann nokkuð þægilegan sigur til að jafna leikinn 1-1. Dæmið snerist aftur við í þriðju hrinu þar sem að heimakonur unnu sannfærandi sigur en Afturelding náði sér strax aftur á strik í fjórðu hrinu.

Liðin skiptust því á að vinna fyrstu fjórar hrinurnar og þurfti oddahrinu til að ljúka leiknum. Oddahrinan var hnífjöfn allan tímann en það var Afturelding sem vann með minnsta mun og tryggði sér 2-3 sigur. Afturelding fer því upp í 3. sæti deildarinnar með 8 stig en Þróttur Fjarðabyggð er í 5. sæti með 6 stig. Þróttur getur hefnt fyrir tapið þegar liðin mætast öðru sinni á morgun.

Stöðutöflu, leikjaplan og fleiri upplýsingar um Unbroken deild kvenna má sjá með því að smella hér.

Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna

HK Ýmir 1-3 Völsungur (14-25, 18-25, 25-20, 11-25).

KA 2-3 HK (25-21, 17-25, 20-25, 27-25, ). Paula Del Olmo Gomez skoraði 23 stig fyrir KA en Þórdís Guðmundsdóttir skoraði sömuleiðis 23 stig fyrir HK.

Þróttur Fjarðabyggð 2-3 Afturelding (25-16, 19-25, 25-17, 17-25, 13-15).