Afturelding og Þróttur R skiptu með sér sigrum

Mynd: Blakdeild Aftureldingar

Tveir leikir fóru fram að Varmá í kvöld þegar tvíhöfði fór fram í Unbroken deildunum. Þróttur Reykjavík sótti lið Aftureldingar heim.

Karlarnir riðu á vaðið í leik sem var fyrirfram afar jafn. Það reyndist svo sannarlega vera raunin en jafnt var á öllum tölum í fyrstu hrinu leiksins. Þróttur Reykjavík hafið naumt forskot alla hrinuna en gat ekki slitið sig frá heimamönnum. Liðin skiptust á stigum á lokakaflanum og Þróttarar unnu 29-31 sigur eftir æsileg lokastig.

Önnur hrina leiksins var einnig mjög spennandi en nú skiptust liðin á að hafa forystu. Líkt og í fyrstu hrinu reyndust gestirnir sterkari undir lokin og unnu 27-29 sigur. Þróttur R leiddi því 0-2 og tryggði sér sigur í leiknum með sannfærandi sigri í þriðju hrinu. Þróttur hefur því unnið tvo síðustu leiki sína eftir þrjú töp í röð þar á undan. Þróttur er í 2. sæti deildarinnar sem stendur með 11 stig en Afturelding er í 6. sæti með þrjú stig. Misjafnt er þó hve marga leiki liðin hafa spilað, Þróttur hefur leikið flesta leiki eða sex talsins en Afturelding fæsta, aðeins þrjá.

Beint í kjölfar karlaleiksins hófst viðureign Aftureldingar og Þróttar R/BFH í kvennadeildinni. Gestirnir byrjuðu fyrstu hrinu vel og leiddu stærstan hluta hennar. Afturelding sneri dæminu hins vegar við undir lok hrinunnar og náði 1-0 forystu í leiknum. Afturelding hélt áfram að spila vel í upphafi annarrar hrinu og náði fljótt þægilegri forystu. Þróttur náði að halda í við heimakonur fram undir miðja hrinu en þá stungu Mosfellingar af og unnu öruggan sigur. Þriðja hrina var svo auðveld fyrir Aftureldingu sem tryggði góðan 3-0 sigur á heimavelli.

Eftir leik kvöldsins fer Afturelding upp í 4. sæti deildarinnar með 6 stig eftir aðeins þrjá leiki. Þróttur R/BFH er enn í 3. sætinu með 7 stig eftir 5 leiki. Keppni í Unbroken deild kvenna heldur áfram miðvikudaginn 4. nóvember en þá tekur topplið HK á móti Þrótti R/BFH í Digranesi.

Unbroken deild karla

Afturelding 0-3 Þróttur Reykjavík (29-31, 27-29, 18-25). Hafsteinn Már Sigurðsson skoraði 15 stig fyrir Aftureldingu en Kacper Kedra skoraði 22 stig fyrir Þrótt Reykjavík.

Unbroken deild kvenna

Afturelding 3-0 Þróttur Reykjavík / BFH (25-22, 25-17, 25-19). Sóldís Björt Leifsdóttir Blöndal skoraði 13 stig fyrir Aftureldingu en Michelle Traini skoraði 12 stig fyrir Þrótt R/BFH.