Einn leikur fór fram í Unbroken deild karla í dag þegar Vestri tók á móti KA.
Vestri vann KA 3–2 (28–26, 18–25, 25–21, 19–25 og 15–8) í Íþróttahúsinu á Torfnesi í dag. Liðin skiptust á að vinna fyrstu tvær hrinur leiksins og strax í þeirri fyrstu þurfti upphækkun til að knýja fram úrslit. Þar hafði Vestri betur, 28–26, en KA svaraði með 25–18 sigri í annarri hrinu og jafnaði metin.
Heimamenn náðu aftur forystunni með 25–21 sigri í þriðju hrinu. KA gaf sig þó ekki og vann þá fjórðu 25–19, svo grípa þurfti til oddahrinu. Þar var munurinn mestur á liðunum, Vestri vann 15–8 og tryggði sér sigurinn.
Þetta var annar fimm hrinu sigur Vestra í röð en liðið lagði Þrótt Fjarðabyggð 3–2 á útivelli 10. október. Vestri vann einnig tvo 3–1 sigra á HK fyrr í mánuðinum og hefur því unnið alla fjóra deildarleiki sína það sem af er tímabili. Með sigrinum komst Vestri í efsta sæti deildarinnar með tíu stig, einu stigi á undan Hamri.
Liðin mætast aftur á Torfnesi á morgun, sunnudaginn 25. október, klukkan 12:15 en þar hefur KA færi á að hefna fyrir tapið í dag.