Drengjalið Íslands í flokki U20 heldur í dag til Skotlands þar sem liðið mun taka þátt í SCA móti um helgina. Mótið er hluti af undankeppni EM 2027 í aldursflokknum.
Mótið er sambærilegt því sem íslenska stúlknalandsliðið vann fyrr í mánuðinum þegar þær léku í San Marino. Leikið er í riðli með öðrum liðum úr Smáþjóðadeildinni og telur keppnin sem undankeppni fyrir Evrópumótið 2027. Drengirnir halda til Largs í Skotlandi en þar verður leikið dagana 16.-18. október. Aðeins fjórar þjóðir taka þátt að þessu sinni en auk Íslands mæta Skotland, Írland og Norður-Írland til leiks. Leikjadagskrá og leikmannahóp Íslands má sjá hér:
Föstudagur 16. október
13:30 Skotland – Ísland
Laugardagur 17. október
10:30 Ísland – Írland
18:00 Norður-Írland – Ísland
Sunnudagur 18. október
9:00 Bronsleikur
13:30 Úrslitaleikur
