Ísland mætir til leiks á NEVZA

Stúlknalandslið Íslands í flokki U17 hélt í morgun til Danmerkur þar sem þær taka þátt í Norðurlandamóti næstu daga. Leikið verður í Ikast frá mánudegi til miðvikudags.

Undanfarin ár hefur Ísland tekið þátt í mótum á vegum NEVZA (North European Volleyball Zonal Association) en fyrr á þessu ári varð breyting á flokkun Íslands. Í dag fellur Ísland eingöngu undir SCA (Small Countries Association) og tekur þátt í mótum á vegum þeirrar deildar innan evrópska blaksins. Íslandi var hins vegar boðið að taka þátt í NEVZA mótinu þetta árið þar sem að mótið gefur ekki sæti á stórmótum eða öðrum stærri viðburðum.

Ísland sendir til leiks kvennalið í flokki U17 (fæddar 2010 eða síðar) en þjálfarar liðsins eru Atli Fannar Pétursson og Amelía Ýr Sigurðardóttir.

Blaksamband Íslands mun fjalla um mótið á samfélagsmiðlum sínum og má fylgja þeim á Facebook og Instagram á meðan að mótinu stendur. Einnig er hægt að finna upplýsingar frá danska sambandinu með því að smella hér. Upplýsingar um streymi frá mótinu eru væntanlegar.

Fyrstu fjórir leikir liðsins eru klárir en leikjaplan miðvikudags á eftir að koma í ljós þar sem að leikið verður um sæti þann dag.

Leikir Íslands á NEVZA U17 – Íslenskur tími

Mánudagur 12. október

7:00 Ísland – Danmörk (Hvítar)

12:00 Ísland – Svíþjóð

Þriðjudagur 13. október

7:00 Ísland – England

17:00 Ísland – Danmörk (Rauðar)