Hamar á topp Unbroken deildar karla eftir sigur á Þrótti

Mynd: Sigrún Kristjánsdóttir

Einn leikur fór fram í Unbroken-deild karla í kvöld þegar Hamar tók á móti Þrótti Reykjavík í Hveragerði.

Leikurinn fór vel af stað og virtist vera jafnt á með liðunum í upphafi fyrstu hrinu. Heimamenn tóku hins vegar fljótlega völdin og unnu fyrstu hrinuna með miklum yfirburðum, 25–14.

Önnur hrina fór einnig vel af stað. Þrátt fyrir góða byrjun Þróttar gáfust heimamenn ekki upp. Hægt og rólega náðu þeir að vinna niður fimm stiga forskot Þróttar og jafna stöðuna. Hrinan fór alla leið í upphækkun en endaði með sigri Þróttar, 27–25.

Hvergerðingar höfðu góð tök á þriðju hrinu, sem endaði með sigri þeirra, 25–17, og komu sér því í góða stöðu. Þróttur fór vel af stað í fjórðu hrinu en gekk þó erfiðlega að slíta sig frá heimamönnum, sem voru ávallt að narta í hælana á þeim. Hamar náði að lokum að jafna stöðuna í 17–17 og svo aftur í 21–21 þegar Þróttur fékk dæmda á sig ranga uppstillingu í móttöku. Að lokum fór svo að Hamar hafði betur, 25–21, og vann því leikinn 3–1.

Hamar fer því á topp Unbroken-deildar karla með níu stig eftir fjóra leiki, á meðan Þróttur situr í fjórða sæti með fimm stig.

Næsti leikur í Unbroken-deild karla er 24. október þegar Vestri tekur á móti KA á Ísafirði.