U17 lið Íslands í stúlknaflokki tryggði sér í dag bronsverðlaun á Norðurlandamótinu í blaki. Leikið var um sæti í dag og vann Ísland báða leiki dagsins.
Stelpurnar í U17 liðinu byrjuðu mótið vel og unnu einn af tveimur leikjum sínum á mánudag. Þar byrjuðu þær á sigri gegn Danmörku (hvítum) en töpuðu seinni leik mánudagsins gegn sterku liði Svía. Á þriðjudag unnu íslensku stelpurnar aftur fyrri leik sinn þegar þær náðu í öruggan sigur gegn Englandi en töpuðu svo fyrir Danmörku (rauðum). Stelpurnar léku því um 3.-5. sæti á mótinu þar sem þær mættu Englandi og Danmörku (hvítum) í litlum riðli.
Í dag fóru leikirnir um 3.-5. sæti fram en Ísland gerði sér lítið fyrir og vann báða leikina. Stelpurnar unnu 3-1 sigur gegn Englandi og unnu svo frábæran 3-0 sigur gegn danska liðinu og tryggðu sér þar með bronsverðlaun á mótinu. Glæsilegur árangur hjá afar efnilegum leikmönnum!
