Danmörk og Finnland unnu annan daginn í röð

Sigurganga Danmerkur hélt áfram í gær en Finnland vann einnig óvæntan en öruggan sigur á Serbíu.

EM karla heldur áfram af fullum krafti en Danir unnu annan sigur sinn í röð í gær. Þeir unnu öflugan 3-0 sigur gegn Eistlandi og eru því nánast búnir að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum. Finnland vann einnig 3-0 sigur á Serbíu sem telst óvænt. Svíþjóð mætti sterku liði Slóvena og laut í lægra haldi gegn þeim.

Tyrkland og Pólland unnu auðvelda sigra í sínum leikjum en Frakkland og Ítalía unnu einnig þrátt fyrir nokkuð meiri mótstöðu frá sínum andstæðingum. Aðeins einn leikur fór í oddahrinu í gær en þar vann Ísrael 3-2 sigur á Portúgal.

Nú þegar töluvert er liðið á riðlakeppnina fara línur að skýrast hvað varðar 16-liða úrslit Evrópumótsins. Fjögur lið úr hverjum riðli fara áfram í 16-liða úrslit en tvö lið sitja eftir. Í dag mætast mörg af lágt skrifuðu liðum mótsins innbyrðis og því verður fróðlegt að sjá hverjir muni eiga raunhæfan möguleika á að komast áfram úr riðlinum eftir leiki dagsins.

Úrslit gærdagsins – 13. september

Eistland 0-3 Danmörk (26-28, 22-25, 16-25). Märt Tammearu skoraði 12 stig fyrir Eistland en Mads Kyed Jensen skoraði 19 stig fyrir Danmörku.

Portúgal 2-3 Ísrael (25-19, 20-25, 25-20, 22-25, 7-15). Alexandre Ferreira skoraði 20 stig fyrir Portúgal en Mark Rura skoraði 23 stig fyrir Ísrael.

Slóvenía 3-0 Svíþjóð (25-16, 25-21, 25-12). Nik Mujanović skoraði 17 stig fyrir Slóveníu en Axel Enlund skoraði 12 stig fyrir Svíþjóð.

Sviss 0-3 Tyrkland (23-25, 19-25, 19-25). Julian Weisigk skoraði 15 stig fyrir Sviss en Adis Lagumdzija og Efe Bayram skoruðu 17 stig hvor fyrir Tyrkland.

Finnland 3-0 Serbía (25-19, 25-21, 25-23). Joonas Jokela skoraði 19 stig fyrir Finnland en Lazar Marinović skoraði 14 stig fyrir Serbíu.

Norður-Makedónía 0-3 Pólland (19-25, 16-25, 13-25). Aleksandar Ljaftov skoraði 6 stig fyrir Norður-Makedóníu en Bartłomiej Bołądź skoraði 13 stig fyrir Pólland.

Lettland 1-3 Frakkland (12-25, 16-25, 25-22, 13-25). Kristaps Smits skoraði 19 stig fyrir Lettland en Mathis Henno og Simon Magnin skoruðu 16 stig hvor fyrir Frakkland.

Ítalía 3-1 Slóvakía (25-17, 25-27 25-10, 25-19). Pardo Mati skoraði 22 stig fyrir Ítalíu en Erik Gulak og Jakub Ihnat skoruðu 12 stig hvor fyrir Slóvakíu.

Leikir dagsins – 14. september

13:00 Úkraína – Portúgal

14:00 Þýskaland – Sviss

14:00 Serbía – Holland

14:00 Slóvakía – Tékkland

16:00 Búlgaría – Ísrael

17:00 Eistland – Belgía

17:00 Rúmenía – Tyrkland

19:00 Slóvenía – Grikkland