Hamar varð Meistari meistaranna í karlaflokki í blaki í dag eftir 3–2 sigur á KA en leikið var í Digranesi.
Leikur Meistarar meistaranna markar upphaf hvers tímabils en þar mætast Íslandsmeistarar og Bikarmeistarar tímabilsins á undan. KA urðu íslandsmeistarar á meðan Hamar varð bikarmeistari.
KA byrjaði betur og vann fyrstu hrinuna 25–22, en Hamarsmenn svöruðu með 25–21 sigri í annarri hrinu. Liðin skiptust síðan á að vinna hrinur. KA tók þá þriðju 25–17, áður en Hamar vann fjórðu hrinuna 25–20 og knúði fram oddahrinu.
Oddahrinan var æsispennandi og hvorugt liðið náði að slíta sig frá hinu. Að lokum hafði Hamar betur, 17–15, og tryggði sér þar með sigur í leiknum og titilinn Meistari meistaranna.
Þrátt fyrir að leikurinn hafi farið í 5 hrinur þá bar leikurinn þess merki að um fyrsta leik tímabilsins var að ræða. En ljóst er að bæði lið eiga eftir að slípa sig betur saman.
Það má hinsvegar teljast ansi líklegt að bæði þessi lið eigi eftir að berjast um þá titla sem í boði verða í vetur.