Kvennalið KA er meistari meistaranna eftir 3-1 sigur á HK í Digranesi í kvöld. Meistarar meistaranna markar upphaf hvers tímabils en í leiknum mætast íslandsmeistarar og bikarmeistarar tímabilsins á undan. Þar sem að HK vann alla þrjá titla síðasta tímabils þá mættu þær KA sem enduðu í 2.sæti.
Fyrsta hrinan var afar spennandi en liðin skiptust á að hafa frumkvæðið en að lokum var það KA sem hafði betur í upphækkun, 27:25. HK svaraði af miklum krafti í annarri hrinu og vann hana örugglega, 25:13.
KA náði aftur undirtökunum í þriðju hrinu og vann hana 25:17. Fjórða hrinan var svo æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en í upphækkun. KA hafði náð góðu forskoti í hrinunni en HK gáfu ekkert aftur og jöfnuðu leikinn. Að lokum reyndust KA-konur sterkari og unnu 27:25 og fögnuðu þar með 3:1-sigri.
KA hefur því hafið keppnistímabilið með titli eftir sterkan sigur á Íslands- deildar og bikarmeisturum HK.