Allt eftir bókinni á þriðja keppnisdegi

EM karla hélt áfram í gær með átta leikjum. Mikil spenna var í nokkrum leikja gærdagsins.

Eftir þriðja keppnisdag hafa öll liðin spilað að minnsta kosti einn leik en nokkur hafa spilað tvo leiki. Búlgaría hefur unnið tvo auðvelda sigra það sem af er mótinu og þá unnu Þýskaland og Úkraína sömuleiðis annan sigur sinn í gær. Mesta spennan í leikjum gærdagsins var í leik Serbíu og Eistlands sem var afar jafn allan tímann. Serbía vann 3-1 sigur en þrjár af hrinunum fjórum unnust með minnsta mun. Þá fóru tvær þeirra í upphækkun.

Í dag fara einnig fram átta leikir en snemma dags mætast Frakkland og Tyrkland í hörkuleik. Belgía og Finnland mætast í baráttu um efstu sæti C-riðils og ósigruð lið Búlgaríu og Úkraínu mætast í B-riðli. Deginum lýkur á leik Ítalíu gegn Grikklandi en leikið verður innandyra í þetta skiptið.

Úrslit gærdagsins – 11. september

Úkraína 3-0 Norður-Makedónía (25-22, 25-22, 25-10). Oleh Plotnytskyi skoraði 16 stig fyrir Úkraínu en Nikola Gjorgiev og Filip Savovski skoruðu 8 stig hvor fyrir Norður-Makedóníu.

Tékkland 3-1 Grikkland (25-21, 25-17, 23-25, 25-23). Marek Sotola skoraði 18 stig fyrir Tékkland en Alexandros Raptis skoraði 16 stig fyrir Grikkland.

Þýskaland 3-0 Lettland (25-20, 25-20, 25-16). Anton Brehme skoraði 11 stig fyrir Þýskaland en Jānis Eduards Medenis og Kristaps Smits skoruðu 9 stig hvor fyrir Lettland.

Holland 1-3 Belgía (14-25, 25-18, 17-25, 14-25). Silvester Meijs skoraði 25 stig fyrir Holland en Sam Deroo skoraði 19 stig fyrir Belgíu.

Portúgal 0-3 Búlgaría (18-25, 18-25, 20-25). Andre Pereira skoraði 13 stig fyrir Portúgal en Aleksandar Nikolov skoraði 17 stig fyrir Búlgaríu.

Serbía 3-1 Eistland (25-23, 26-24, 26-28, 25-22). Drazen Luburic skoraði 20 stig fyrir Serbíu en Märt Tammearu skoraði 18 stig fyrir Eistland.

Sviss 1-3 Rúmenía (21-25, 23-25, 25-13, 20-25). Julian Weisigk og Lars Migge skoruðu 13 stig hvor fyrir Sviss en Alexandru Rata skoraði 16 stig fyrir Rúmeníu.

Slóvakía 0-3 Slóvenía (29-31, 15-25, 18-25). Julius Firkal skoraði 12 stig fyrir Slóvakíu en Nik Mujanović skoraði 14 stig fyrir Slóveníu.

Leikir dagsins – 12. september

12:00 Danmörk – Holland

13:00 Pólland – Ísrael

14:00 Frakkland – Tyrkland

14:00 Svíþjóð – Tékkland

15:00 Belgía – Finnland

16:00 Búlgaría – Úkraína

17:00 Rúmenía – Þýskaland

19:05 Grikkland – Ítalía