Odense Volleyball, þar sem Galdur Máni og Máni Mattíasson leika, mætti Gentofte í undanúrslitum um danska meistaratitilinn.
Fyrsti leikurinn fór fram 21. mars á heimavelli Odense, þar sem Gentofte hafði betur í æsispennandi fimm hrinu leik og sigraði 2-3 (23-25, 25-23, 25-18, 23-25, 12-15).
Annar leikurinn var leikinn 26. mars á heimavelli Gentofte. Þar sýndi heimaliðið styrk sinn og sigraði 3-1 (17-25, 25-21, 25-17, 25-14) og komst í 2-0 í einvíginu.
Þriðji leikurinn fór fram 28. mars á heimavelli Odense, þar sem allt var undir hjá heimamönnum. Odense mætti ákveðið til leiks og vann sannfærandi 3-0 (25-17, 25-22, 25-21) og knúði þannig fram fjórða leik.
Fjórði leikurinn var leikinn 31. mars á heimavelli Gentofte, þar sem heimaliðið var staðráðið í að klára einvígið. Gentofte vann 3-0 (25-20, 25-22, 27-25) og tryggði sér þar með sæti í úrslitum, þar sem liðið mætir Middelfart VK.
Odense Volleyball mun því leika um 3. sætið gegn Ikast KFUM. Dagsetningar leikjanna hafa ekki enn verið staðfestar, en hægt verður að fylgjast með þegar nær dregur.