Smáþjóðamótið í Andorra hélt áfram í dag en bæði íslensku liðin voru í eldlínunni. Riðlakeppnin kláraðist í morgun en einnig var leikið um sæti í úrslitum mótsins.
Katla Björg Beck og Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir
Katla og Sveinbjörg riðu á vaðið þegar þær léku síðustu leikina í sínum riðli. Báðir leikir töpuðust en þar með spilar liðið um 7.-9. sæti á mótinu. Þar er leikið í litlum riðli og kláruðu stelpurnar báða leiki sína í dag. Fyrst léku þær gegn Andorra í leik sem tapaðist en þær enduðu á flottum sigri gegn Norður-Írlandi. Stelpurnar enda því líklega í 8. sæti mótsins en það skýrist eftir leiki morgundagsins.
Helena Kristjánsdóttir og Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir
Helena og Sóldís höfðu unnið alla leiki sína nokkuð sannfærandi og voru á flottu skriði. Þær áttu aðeins einn leik í dag en það var undanúrslitaleikur gegn Skotlandi. Stelpurnar unnu hann 2-0 og eru því komnar í úrslit mótsins. Úrslitaleikurinn fer fram klukkan 11:00 á morgun, sunnudag, en þar mæta stelpurnar liði frá Færeyjum.
Útsendingar frá mótinu má finna með því að smella hér.