Aftur vann Ísland til gullverðlauna

Smáþjóðamóti U19 í strandblaki lauk í dag þegar síðasti keppnisdagurinn í Andorra fór fram. Ísland lék til úrslita aðra helgina í röð.

Liðin tvö léku fyrstu leiki sína á föstudag en í dag var komið að því að leika til úrslita. Katla Björg Beck og Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir spiluðu síðasta leik sinn í gær en þær luku keppni í 7.-8. sæti mótsins. Helena Kristjánsdóttir og Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir höfðu unnið alla leiki sína á mótinu og léku til úrslita en þar mættu stelpurnar liði frá Færeyjum.

Helena og Sóldís fóru hægt af stað í fyrstu hrinu en voru mun betra liðið eftir allra fyrstu stigin. Þær unnu fyrstu hrinuna örugglega, 21-12, og voru því einni hrinu frá gullinu. Jafnræði var með liðunum framan af annarri hrinunni en fljótlega stungu íslensku stelpurnar af. Þær unnu aftur 21-12 og leikinn því 2-0. Helena og Sóldís unnu því alla leiki sína 2-0 á mótinu og tryggðu gullverðlaunin á sannfærandi hátt. Þær hafa jafnframt tryggt sér sæti á EM U20 á næsta ári, líkt og Sölvi og Svanur Hafþórssynir gerðu um síðustu helgi.