Lokaleikur íslenska U18 drengjaliðsins fór fram í dag þegar liðið mætti Grikklandi. Leikurinn var sá sjöundi á níu dögum og því hefur mikið gengið á síðustu dagana.
Í gær vann íslenska liðið sína fyrstu hrinu á mótinu í 3-1 tapi gegn Finnlandi. Drengja- og stúlknalið Íslands í U18 flokki voru í fyrsta sinn í lokakeppni stórmóts og var þetta fyrsta hrinan sem Ísland vinnur í slíkri keppni. Það var þó erfiðara hjá drengjunum í dag gegn sprækum Grikkjum. Fyrsta hrinan byrjaði þokkalega en um miðja hrinu skoruðu þeir grísku 9 stig í röð og gerðu út um hrinuna. Aftur var kaflinn um miðja aðra hrinu erfiður en sú hrina tapaðist einnig. Jafnara var með liðunum í þriðju hrinu en Grikkir reyndust sterkari og tryggðu sér 0-3 sigur.
Ísland 0-3 Grikkland (12-25, 17-25, 18-25). Ágúst Leó Sigurfinnsson skoraði 10 stig fyrir Ísland en Hákon Freyr Arnarsson skoraði 8 stig.
Ísland hefur því lokið leik á EM þetta árið og koma drengirnir reynslunni ríkari frá mótinu. Upp úr stendur hrinan sem vannst í gær en einnig átti liðið flotta frammistöðu í mörgum öðrum leikjum. Gaman verður að fylgjast með þessum ungu leikmönnum í Unbroken deildinni og víðar.