Stelpurnar komnar á fullt í Andorra

Stúlknalið Íslands í flokki U19 tekur þessa dagana þátt í smáþjóðamóti í strandblaki. Mótið er sambærilegt því sem Ísland vann í drengjaflokki fyrir viku síðan en að þessu sinni sendir Ísland tvö kvennalið til leiks.

Lið Íslands skipa annars vegar Helena Kristjánsdóttir og Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir en hins vegar Katla Björg Beck og Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir. Liðin hófu leik í dag, föstudag, þegar riðlakeppnin hófst. Helena og Sóldís leika í A-riðli en Katla og Sveinbjörg í B-riðli.

Helena Kristjánsdóttir og Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir

A-riðill er fjögurra liða riðill og leika öll lið þar þrjá leiki. Helena og Sóldís léku alla þrjá leikina í riðlakeppninni í dag þegar þær mættu liðum frá Andorra, Írlandi og Möltu. Þær unnu alla leikina 2-0 og standa því vel að vígi. Þar sem að þær unnu sinn riðil fara þær beint í undanúrslit sem fara fram á morgun.

Katla Björg Beck og Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir

B-riðill er stærri riðillinn í keppninni en þar eru fimm lið. Liðin leika því fjóra leiki í heildina áður en útsláttarkeppni hefst. Katla og Sveinbjörg léku tvo leiki í dag þar sem þær töpuðu gegn Andorra en unnu gegn Norður-Írlandi. Á morgun mæta þær liðum frá Skotlandi og Færeyjum en eftir það kemur í ljós hvernig leikir þeirra raðast í framhaldinu.

Sýnt er beint frá mótinu á YouTube en rásina má finna með því að smella hér.