Úrslitin kvennamegin ráðast á sunnudag

Mynd: HK Blak

Þrír leikir fóru fram í Unbroken deild kvenna í dag en meðal annars mættust HK og KA í uppgjöri um deildarmeistaratitilinn. Liðin mætast tvívegis um helgina en HK gat tryggt sér efsta sætið með 3-0 eða 3-1 sigri í dag.

HK byrjuðu stórleikinn betur og litu afar vel út í fyrstu hrinu leiksins. HK leiddi mest með 8 stigum en KA átti góða endurkomu. Að lokum vann HK þó nauman sigur og tók 1-0 forystu. Endurkoman hafði greinilega kveikt í KA stúlkum sem voru mun öflugri í annarri hrinu. KA vann afar auðveldan sigur en loks jafnaðist leikurinn út í þriðju hrinu. Jafnræði var með liðunum frá upphafi hrinu en þó enn nokkrar sveiflur í leik liðanna. KA seig fram úr um miðja hrinu og leit ekki til baka. Þær unnu þriðju hrinuna og sáu þannig til þess að HK myndi ekki lyfta bikarnum í lok leiks.

Enn snerist dæmið við í fjórðu hrinu þar sem að HK hafði þægilega forystu alla hrinuna. KA minnkaði muninn en það dugði ekki til og leikurinn fór í oddahrinu. Þar var HK mun betra liðið og vann auðveldan 15-5 sigur. HK er því með 2 stiga forskot fyrir lokaleikinn og dugar að komast í oddahrinu á morgun. KA vinnur titilinn hins vegar með 3-0 eða 3-1 sigri.

Völsungur og Þróttur R/BFH mættust á Húsavík í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Afturelding og ÞRóttur R/BFH hafa barist hart um 4. sæti deildarinnar en gott gengi Aftureldingar síðustu vikur hefur gert Þrótturum erfitt fyrir. Völsungur situr í 3. sæti og er liðið öruggt með sæti í úrslitakeppninni. Gestirnir byrjuðu mjög vel og leiddu 1-7 en þá fór allt á hvolf hjá liðinu. Völsungur jafnaði nánast strax og lék svo mun betur í seinni hluta hrinunnar. Völsungur vann þægilegan sigur og leiddi 1-0.

Sveiflurnar voru heldur minni í annarri hrinu en aftur voru það heimakonur sem náðu forskoti um miðja hrinu. Völsungur vann og leiddi 2-0. Jafnræði var með liðunum í þriðju hrinu en líkt og áður vann Völsungur og tryggði sér 3-0 sigur. Þar með voru vonir Þróttara um sæti í úrslitakeppninni úti og Afturelding endar í 4. sætinu.

Þróttur Fjarðabyggð tók á móti Aftureldingu í Neskaupstað og var fyrirfram búist við þægilegum sigri gestanna. Þróttur F hefur aðeins náð í eitt stig á tímabilinu en Afturelding verið á góðu flugi eftir áramót. Fyrsta hrina var algjör einstefna og vann Afturelding afar auðveldlega. Önnur hrina var nokkuð jafnari en aftur vann Afturelding þægilegan sigur.

Heimakonur tóku við sér í þriðju hrinu og náði góðu forskoti eftir miðbik hrinunnar. Afturelding var nálægt endurkomu en Þróttur F vann og minnkaði muninn í 1-2. Afturelding var þó ekki lengi að taka stjórnina aftur og tryggði sér 1-3 sigur með því að vinna fjórðu hrinu auðveldlega.

Á sunnudag mætast þessi lið öðru sinni í öllum tilfellum og verður allt undir í Digranesi. Eftir leik dagsins eiga bæði lið enn möguleika á efsta sætinu og verður um sannkallaðan úrslitaleik að ræða. Völsungur hefur tryggt sér 3. sætið og Afturelding endar í 4. sæti Unbroken deildar kvenna.

Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna – Laugardagur 7. mars

Völsungur 3-0 Þróttur R/BFH (25-16, 25-20, 25-21)

Þróttur Fjarðabyggð 1-3 Afturelding (11-25, 16-25, 25-21, 15-25). Maria Jimenez Gallego og Hrefna Ágústa Marinósdóttir skoruðu 10 stig hvor fyrir Þrótt Fjarðabyggð. Sóldís Björt Leifsdóttir Blöndal skoraði 12 stig fyrir Aftureldingu og Alexia Joffrin bætti við 11 stigum.

HK 3-2 KA (25-23, 16-25, 19-25, 25-20, 15-5). Elísabet Einarsdóttir skoraði 18 stig fyrir HK en Julia Bonet Carreras skoraði 24 stig fyrir KA.