European League hélt áfram í dag, bæði karla- og kvennamegin, með tveimur leikjum. Finnland mætti Spáni kvennamegin en í kjölfarið lék Finnland gegn Slóvakíu í karlaflokki.
Konurnar áttu fyrri leikinn líkt og aðra daga helgarinnar en fyrsta hrina leiksins var afar jöfn og spennandi. Spánn hafði forystuna framan af hrinunni en Finnland vann nokkuð sannfærandi eftir öflugan lokakafla. Næsta hrina var algjör martröð fyrir þær spænsku en Finnland leiddi 1-10 eftir frábæra byrjun. Eftirleikurinn var auðveldur og Finnland náði 0-2 forystu í leiknum.
Spænska liðið gerði aðeins betur í þriðju hrinunni en náði aldrei flugi eftir fína fyrstu hrinu. Leikurinn fjaraði smám saman út og Finnlandi vann öruggan 0-3 sigur. Finnland vann því báða leiki sína þessa helgina og er í 5. sæti deildarinnar eins og staðan er í dag. Nokkrum leikjum er þó ólokið þar sem leikið verður á morgun, sunnudag.
Undir kvöldið mættust svo Finnland og Slóvakía karlamegin og varð úr spennandi og skemmtilegur leikur. Finnland stýrði leiknum í fyrstu hrinu og vann hana sannfærandi en Slóvakía svaraði með flottri frammistöðu í annarri hrinu. Slóvakía vann hana með minnsta mun og jafnaði leikinn 1-1. Finnland komst aftur á beinu brautina í þriðju hrinu og kláraði leikinn á endanum nokkuð sannfærandi 3-1.
Spánn 0-3 Finnland (21-25, 19-25, 15-25). Lucia Varela Gomez var stigahæst í spænska liðinu með 12 stig. Kantsmassararnir stýrðu sóknarleiknum hjá Finnlandi en Ada Aronen skoraði 16 stig og Suvi Kokkonen bætti við 15 stigum.
Finnland 3-1 Slóvakía (25-18, 23-25, 25-17, 25-20). Veikka Lindqvist var stigahæstur hjá Finnlandi með 20 stig en Luka Marttila skoraði 19 stig. Michal Scerba skoraði 11 stig fyrir Slóvakíu.
Á morgun lýkur blakveislunni í Digranesi þegar bæði karla- og kvennalið Íslands leika síðustu leiki sína í European League. Stelpurnar hefja leik klukkan 16:00 og mæta þar Spáni en strákarnir mæta Finnlandi klukkan 19:00. Um að gera að fjölmenna í Digranes og styðja landsliðin okkar.