Frábær byrjun dugði ekki til gegn Spánverjum

Mynd: CEV

Íslenska kvennalandsliðið mætti Spáni í lokaleik sínum í European League þetta tímabilið. Leikið var í Digranesi en bæði lið voru í hefndarhug eftir töp gegn Finnlandi.

Ísland byrjaði leik dagsins frábærlega og hélt í við Spánverjana alla hrinuna. Spánn var skrefi á undan en Ísland minnkaði muninn í 23-24 undir lokin. Spánn skoraði lokastigið og slapp naumlega með sigur í fyrstu hrinu. Þær spænsku komu sterkari inn í næstu hrinu og höfðu þægilega forystu um miðja hrinuna. Spánn kláraði hrinuna af krafti og leiddi því 0-2. Þriðja hrinan var einnig erfið fyrir íslensku stelpurnar sem náðu ekki að komast á flug líkt og í fyrstu hrinu. Spánn vann aftur og kláraði leikinn 0-3.

Ísland 0-3 Spánn (23-25, 16-25, 15-25). Helena Einarsdóttir og Lejla Sara Hadziredzepovic skoruðu 9 stig hvor fyrir Ísland en Jessica Akamere skoraði 13 stig fyrir Spán.

Íslenska kvennalandsliðið hefur því lokið keppni í European League þetta tímabilið. Karlalandsliðið leikur sinn síðasta leik í kvöld þegar liðið mætir sterku liði Finnlands.