Slóvakía of stór biti fyrir íslensku strákana

Mynd: CEV

Ísland mætti Slóvakíu í kvöld í European League karlamegin. Lið Slóvakíu er líkamlega afar sterkt og sýndu þeir mátt sinn í dag gegn íslensku strákunum.

Ísland lék í Grikklandi um síðustu helgi og átti þar fína leiki gegn heimamönnum og Norður-Makedóníu. Nú var komið að Slóvakíu sem byrjaði af miklum krafti. Gestirnir voru með kraftmiklar uppgjafir og ógnarsterka hávörn sem gerði Íslandi erfitt fyrir í leiknum. Fyrsta hrina fór rólega af stað og Ísland hélt í við Slóvakíu fyrstu stigin en svo kom slæmur kafli hjá strákunum okkar. Slóvakía nýtti sér það og vann fyrstu hrinu auðveldlega.

Önnur hrina byrjaði á svipaðan hátt og sú fyrsta þar sem að Slóvakía jók smám saman forskot sitt. Aftur unnu gestirnir sannfærandi sigur en spilið mjakaðist þó í rétta átt hjá Íslandi. Þriðja hrinan var sú jafnasta í leiknum en það dugði þó ekki til. Hávörn Slóvakíu lék íslenska liðið grátt og að lokum unnu gestirnir aftur öruggan sigur. Slóvakía vann leikinn því 0-3.

Ísland 0-3 Slóvakía (10-25, 12-25, 16-25). Hafsteinn Valdimarsson skoraði 6 stig fyrir Ísland en stigaskorið dreifðist vel á milli næstu manna. Patrik Matejcik var stigahæstur hjá Slóvakíu með 14 stig.

Ísland fær frídag á morgun en þá mætast Slóvakía og Finnland í Digranesi. Ísland leikur svo sinn síðasta leik á sunnudag þegar liðið mætir Finnlandi. Sá leikur hefst kl. 19:00 í Digranesinu og lýkur þessari miklu blakhelgi með þeim leik.