Finnland með fullt hús stiga eftir sigur gegn Íslandi

Mynd: CEV

Síðasti leikur íslenska karlarliðsins í European League fór fram í kvöld þegar liðið mætti ógnarsterkum Finnum. Þeir finnsku voru ósigraðir í keppninni og var því ljóst að leikurinn yrði afar krefjandi fyrir íslensku strákana.

Finnland byrjaði af krafti en Ísland hélt vel í þá til að byrja leikinn. Sterkar uppgjafir og hávörn skiluðu finnska liðinu forystunni um miðja hrinu og seig Finnland fram úr þegar leið á hrinuna. Finnland vann hana sannfærandi og héldu áfram að þjarma að íslensku strákunum í næstu hrinu. Hana vann Finnland einnig og finnska liðið gaf ekkert eftir. Ísland átti fínar skorpur en heilt yfir var Finnland sterkari aðilinn. Leiknum lauk 0-3 Finnlandi í vil og Finnland kláraði keppnina því með fullt hús stiga.

Ísland 0-3 Finnland (14-25, 15-25, 12-25). Kristján Valdimarsson skoraði 5 stig fyrir Ísland og Hreinn Kári Erluson skoraði 4 stig. Niko Suihkonen skoraði 14 stig fyrir Finnland.

Þar með er keppni karlaliðsins í European League lokið þetta árið en drengirnir koma reynslunni ríkari frá mótinu. Næst á dagskrá hjá landsliðum Íslands er keppni U18 landsliðanna í lokamóti EM. Bæði drengja- og stúlknalið Íslands taka þátt í lokamótum EM sem fram fara í júlí þetta sumarið.