Leikir laugardagsins á EM karla voru æsispennandi og var nokkuð um óvænt úrslit. Búlgaría þurfti að sætta sig við fyrsta tap sitt á mótinu.
Gærdagurinn hófst með leik Danmerkur og Hollands en bæði lið höfðu tapað fyrstu leikjum sínum. Danmörk gerði sér lítið fyrir og vann 3-0 sigur en það var fyrsti sigur þeirra í lokamóti karla síðan 2013. Svíþjóð átti hörkuleik gegn Tékklandi en varð að sætta sig við 3-2 tap og þá vann Finnland glæsilegan sigur á Belgíu eftir oddahrinu. Frakkland vann Tyrkland með sannfærandi hætti og eru þá eina lið D-riðils með fullt hús stiga. Þýskaland vann að vísu sinn leik gegn Rúmeníu en þurfti fimm hrinur til þess.
Búlgaría og Úkraína mættust í Sofia en allar hrinur leiksins voru afar spennandi. Það var Úkraína sem vann leikinn 3-1 en þau úrslit verða að teljast nokkuð óvænt. Búlgaría er enn í ágætis málum en á þó eftir að spila gegn Póllandi. Pólverjar unnu Ísrael örugglega í gær. Lokaleikur dagsins var 3-0 sigur Ítalíu á liði Grikklands.
Í dag fara aftur fram átta leikir en líkt og í gær eiga allar þrjár Norðurlandaþjóðirnar leik í dag. Danmörk mætir Eistlandi, Svíþjóð mætir Slóveníu og Finnland mætir Serbíu. Það er því ljóst að öll liðin eiga erfiða leiki fyrir höndum. Þá verða stórlið Póllands, Frakklands og Ítalíu í sviðsljósinu.
Úrslit gærdagsins – 12. september
Danmörk 3-0 Holland (25-17, 25-17, 25-20). Ulrik Dahl skoraði 18 stig fyrir Danmörku en Silvester Meijs og Tom Koops skoruðu 10 stig hvor fyrir Holland.
Pólland 3-0 Ísrael (25-16, 25-17, 25-18). Tomasz Fornal skoraði 10 stig fyrir Pólland en Shay Liberman skoraði 14 stig fyrir Ísrael.
Frakkland 3-0 Tyrkland (25-19, 25-20, 25-19). Théo Faure skoraði 16 stig fyrir Frakkland en Adis Lagumdzija skoraði einnig 16 stig fyrir Tyrkland.
Svíþjóð 2-3 Tékkland (22-25, 23-25, 25-23, 25-17, 13-15). Axel Enlund skoraði 23 stig fyrir Svíþjóð en Lukas Vasina skoraði 19 stig fyrir Tékkland.
Belgía 2-3 Finnland (25-23, 20-25, 19-25, 25-23, 10-15). Sam Deroo skoraði 25 stig fyrir Belgíu en Joonas Jokela skoraði 24 stig fyrir Finnland.
Búlgaría 1-3 Úkraína (23-25, 22-25, 25-21, 21-25). Aleksandar Nikolov skoraði 27 stig fyrir Búlgaríu en Oleh Plotnytskyi skoraði 23 stig fyrir Úkraínu.
Rúmenía 2-3 Þýskaland (22-25, 23-25, 25-22, 25-15, 13-15). Cristian-Daniel Chitigoi skoraði 21 stig fyrir Rúmeníu en Erik Röhrs skoraði 23 stig fyrir Þýskaland.
Grikkland 0-3 Ítalía (23-25, 23-25, 16-25). Alexandros Raptis skoraði 12 stig fyrir Grikkland en Daniele Lavia skoraði 15 stig fyrir Ítalíu.
Leikir dagsins – 13. september
12:00 Eistland – Danmörk
13:00 Portúgal – Ísrael
14:00 Slóvenía – Svíþjóð
14:00 Sviss – Tyrkland
15:00 Finnland – Serbía
16:00 Norður-Makedónía – Pólland
17:00 Lettland – Frakkland
19:05 Ítalía – Slóvakía