Mikið um dýrðir í Napoli

Það var stór dagur á EM karla í gær þegar sex leikir fóru fram í riðlakeppninni. Ítalía lék sinn fyrsta heimaleik við ótrúlegar aðstæður.

Ítalía er einn af gestgjöfum mótsins og var öllu tjaldað til þegar liðið mætti Svíþjóð í eins konar opnunarleik A-riðils. Leikurinn fór fram utandyra á miðju torgi í Napoli. Að vísu þurfti að fresta leik vegna rigningar en eftir stutta seinkun fór leikurinn af stað. Ítalía byrjaði leikinn vel en þeir sænsku gáfu þó ekkert eftir. Ítalía vann á endanum 3-0 sigur þrátt fyrir fínan leik hjá Svíum.Í B-riðli vann Pólland auðveldan sigur á Portúgal og Úkraína vann Ísrael í hörkuleik. Finnland er einnig á sínum heimavelli í C-riðli en Finnar unnu Dani 3-0 í sínum fyrsta leik.

D-riðill fór af stað í fyrradag en í gær mættu bæði Frakkland og Þýskaland til leiks. Frakkar unnu Sviss í leik sem varð óvænt afar jafn. Þá vann Þýskaland 3-1 sigur gegn Tyrklandi í öðrum jöfnum leik.

Í dag fara átta leikir fram en nokkur lið munu spila sinn fyrsta leik á mótinu. Holland og Belgía mætast í nágrannaslag og þá mætast Serbía og Eistland í áhugaverðum leik. Eins og áður má fylgjast með leikjum mótsins á EuroVolleyTV.

Úrslit gærdagsins – 10. september

Pólland 3-0 Portúgal (25-12, 25-18, 25-20). Bartłomiej Bołądź skoraði 9 stig fyrir Pólland en Lourenço Martins skoraði 13 stig fyrir Portúgal.

Frakkland 3-0 Sviss (25-23, 31-29, 25-21). Théo Faure skoraði 21 stig fyrir Frakkland en Lars Migge skoraði 13 stig fyrir Sviss.

Ísrael 1-3 Úkraína (22-25, 19-25, 25-22, 19-25). Shay Liberman skoraði 23 stig fyrir Ísrael en Dmytro Yanchuk skoraði 18 stig fyrir Úkraínu.

Finnland 3-0 Danmörk (25-22, 25-17, 25-20). Luka Marttila og Joonas Jokela skoruðu 17 stig hvor fyrir Finnland. Ulrik Dahl skoraði 13 stig fyrir Danmörku.

Tyrkland 1-3 Þýskaland (25-23, 22-25, 21-25, 19-25). Gökçen Yüksel skoraði 16 stig fyrir Tyrkland en Theo Mohwinkel skoraði sömuleiðis 16 stig fyrir Þýskaland.

Ítalía 3-0 Svíþjóð (25-22, 25-21, 25-17). Yuri Romanò skoraði 13 stig fyrir Ítalíu en Axel Enlund skoraði 9 stig fyrir Svíþjóð.

Leikir dagsins – 11. september

13:00 Úkraína – Norður-Makedónía

14:00 Tékkland – Grikkland

14:00 Þýskaland – Lettland

14:00 Holland – Belgía

16:00 Portúgal – Búlgaría

17:00 Serbía – Eistland

17:00 Sviss – Rúmenía

19:00 Slóvakía – Slóvenía