KA á toppnum kvennamegin

Fjórir leikir fóru fram í Unbroken deildunum í kvöld en þar á meðal var tvíhöfði í Mosfellsbæ. Afturelding tók á móti HK í bæði karla- og kvennaflokki.

Kvöldið hófst á leik Aftureldingar og HK í karladeildinni og var fyrsta hrina leiksins jöfn og spennandi. HK hafði forystuna framan af hrinu en Afturelding lék betur á lokakaflanum og vann hrinuna. Önnur hrina var algjör einstefna þar sem Afturelding komst í 2-0 með auðveldum sigri. Þriðja hrina var keimlík þeirri fyrstu þar sem HK leiddi til að byrja með en Afturelding vann og tryggði sér 3-0 sigur á heimavelli. Afturelding náði í sín fyrstu stig með sigrinum.

Fyrsti kvennaleikur kvöldsins fór fram á Húsavík þar sem ungt lið Völsungs tók á móti KA. Fyrsta hrinan var afar ójöfn en þar náði KA 1-10 forystu og hafði öruggan sigur í kjölfarið. Önnur hrinan var töluvert betri hjá Húsvíkingum en KA vann engu að síður þægilegan sigur. Þær akureyrsku unnu þriðju hrinu einnig á sannfærandi hátt og tryggðu sér 0-3 sigur. KA er því á toppi deildarinnar með fullt hús stiga og hafa ekki enn tapað hrinu í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum.

Afturelding og HK mættust einnig í kvennaflokki en þar byrjuðu heimakonur í Aftureldingu betur. Eftir miðbik hrinunnar jókst forskot Aftureldingar hratt og þær unnu auðveldan sigur í fyrstu hrinu. HK sneri dæminu við í annarri hrinu og náði að jafna leikinn 1-1. HK hélt áfram á góðu skriði í þriðju hrinu og náði 1-2 forystu með sannfærandi sigri í hrinunni. Fjórða hrinan var sveiflukennd og allt hnífjafnt undir lokin. HK reyndust sterkari á lokasprettinum og tryggðu sér 1-3 sigur. HK hefur því unnið báða leiki sína 3-1 en Afturelding er með einn sigur úr tveimur leikjum.

Síðasti leikur kvöldsins fór fram í Digranesi þar sem HK Ýmir mætti Þrótti Reykjavík / BFH. Líkt og Völsungur er HK Ýmir að spila á ungum leikmönnum og Þróttur R/BFH sýndi töluverða yfirburði í upphafi leiks. Þróttur vann fyrstu hrinu auðveldlega og Ýmiskonur voru sömuleiðis lítil fyrirstaða í annarri hrinu. Leikurinn var nokkru jafnari í þriðju hrinu en eftir jafna byrjun var restin af hrinunni afar kaflaskipt. Þróttur R/BFH vann aftur þægilegan sigur og leikinn þar með 0-3 og náði í sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

Úrslit kvöldsins í Unbroken deildunum

Unbroken deild karla

Afturelding 3-0 HK (25-19, 25-12, 25-22)

Unbroken deild kvenna

Völsungur 0-3 KA (11-25, 16-25, 11-25)

HK Ýmir 0-3 Þróttur R/BFH (7-25, 12-25, 14-25)

Afturelding 1-3 HK (25-15, 20-25, 14-25, 22-25)